18.4.2007 | 20:11
Skornir 3 .......... af mér
Í gær fékk ég að fara úr skólanum kl. 14:00 og missti af 20 mínútum því það voru skornir 3 fæðingarblettir af mér, 1 á bakinu og 2 á maganum, það var svo sem ekkert vont því ég var deyfður.
Þess vegna má ég ekki fara á fótboltaæfingu næstu 10 daga . Ég rétt né fótboltamótinu sem er þarnæsta föstudag. Svo má ég ekki fara í sund eða í leikfimi. Í dag losnaði einn plásturinn af og ég sá að læknirinn hafði saumað þar 4 spor. Þarnæsta fimmtudag verða saumarnir svo teknir af mér.
Á Laugardaginn byrjuðum við að rækta tómatatré og í dag kom fyrsti sprotinn upp, en reyndar hjá bróðir mínum. Í dag var ég að læra undir próf sem verður á föstudaginn, þetta er svindlpróf í eðlisfræði þannig að ég má skrifa eins mikið á 1 blað og ég get en bara handskrifa. Á morgun verður svo frí í skólanum . Ég vona að það verði gott veður, svo er taflmót klukkan 13:00 á morgun og þeir sem lenda í 1 eða 2 sæti fara á Suðurlandsmótið og þeir sem lenda í 1-2 sæti á Suðurlandsmótinu fara á eitthvað annað mót sem ég veit ekki hvað heitir.
Um bloggið
Alexander Gautason
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæll vinur minn kæri. það virðist vera nóg að gera hjá þér. og alltaf ferskur í blogginu. það er gott, og þetta er ágætis iðja. Gangi þér allt vel.
Högni Hilmisson, 22.4.2007 kl. 02:53
Sakna þess að lesa bloggið þitt Kristófer, endilega vera duglegur að skrifa :)
Hjördís (IP-tala skráð) 29.4.2007 kl. 16:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.